Dagbók frúarinnar

All we have to decide is what to do with the time that is given to us

30.01.2007 08:25:16 / FrúSóley

Ýmislegt að gerast

Oj, af hverju þarf ég að vera með hálsbólgu og slen akkúrat núna þegar ég má ekki einu sinni vera að því að sofa.  Arg:S.

Alltaf stuð þegar er brjálað að gera, samt:).  Er alveg á fullu að æfa með lúðrasveitinni fyrir tónleikana á fimmtudag, kenna og æfa mig fyrir inntökupróf.  Svo spilaði ég líka um daginn með flautukórnum á minningartónleikum um Manuelu Wiesler.   

Ég fer sumsé út þann 14. febrúar og kem aftur til landsins morguninn 8. mars.  Þetta verður langt og strangt ferðalag.  Það stendur til að ég spili í 6 skólum í 6 borgum í 6 fylkjum.  Kúl.  Svo er ég að fara í einhvern slatta af einkatímum í leiðinni.  Ég hlakka mikið til þess að sjá þessa skóla og hitta kennarana, en minna til þess að vera alein í brjáluðu ferðastressi8|.  Aldrei gaman að búa í ferðatösku, allavega ekki þegar maður þarf að vera að afreka eitthvað.  Allt í lagi ef maður er bara í fríi.

Ég hlakka samt til að heimsækja ömmu og afa í Oklahoma:D.  Þar fæ ég að vera í rúma viku og verður það eflaust mjög ljúft.  Sérstaklega ef veðrið er eins og það var síðast þegar ég kom til Oklahoma í febrúar, heitt og sól!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 22:27:16 / FrúSóley

Gott kvöld

Gæti þetta kvöld orðið betra?  Ja, kannski ef kallinn í auglýsingunni frá Happdrætti Háskólans hringir, þið vitið, þessi sem segir manni að maður hafi unnið fullt af peningum;)

Var á frábærum tónleikum með Stefáni Ragnari (flautuleikara, fyrir þá sem ekki vita) og Elizavetu í Salnum.  Þau voru náttúrulega bara æðisleg:D.  Ég fékk gæsahúð þegar þau spiluðu Prokofiev.  Það er alltaf svo merkilegt þegar flytjendum tekst að láta verk sem er ómanneskjulega efitt í flutningi hljóma eins og það sé barasta það sjálfsagðasta og einfaldasta í heimi.  Litbrigðin í tóninum hjá Stefáni í lagrænu köflunum voru líka ótrúlega fjölbreytt og maður komst algjörlega á annað tilvistarstig þegar fallegustu melódíurnar komu.  Á einum stað notaði hann einmitt blæbrigði sem ég hef bara aldrei heyrt, og það var guðdómlegt.  Samspilið hjá þeim hjónum er líka alveg einstakt.  Þau spila eins og einn maður.

Hitt góða sem gerðist er að ég frétti það að ég fæ að prufuspila í New York8).  Það verður síðasta inntökuprófið í þessari törn, svo að ég hef verið að bíða með að panta flug út af því að ég var að bíða eftir að fá að vita hvort, og þá hvenær, ég ætti að spila þar.  Þeir hafa sumsé áhuga á að heyra í mér, sem er frábært.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 15:24:55 / FrúSóley

Ehemm... Gleðilegt ár og svona

Ég er sumsé ekki hætt að blogga.  Það var aldrei ætlunin að láta svona hrikalega langan tíma líða á milli færslna, en ég hef svosem haft ýmislegt annað á minni könnu.

Fór til Egilsstaða í jólafrí.  Var löt og feit allan tímann og æfði mig frekar takmarkað, enda aðstæður ekki svo vel til þess fallnar þar eystra.  Hitti fjölskyldu og vini, sem var gott.  Borðaði fullt af súkkulaði, sem var líka gott (allavega rétt á meðan;).

Svo kom ég heim og nú gengur lífið sinn vanagang.  Gasalega spennandi.

Er á fullu að æfa fyrir inntökupróf, sem verða seinni partinn í Febrúar (í Ameríku, ef það skyldi leika einhver vafi á því).  Verst er að ég er enn að bíða eftir dagsetningu frá skólanum sem ég er að fara í síðast af öllum, þannig að ég get ekki bókað flug út.  Þeir segjast ekkert geta sagt mér fyrr en í næstu viku:S.  Ojæja, þetta kemur allt í ljós.  Sennilega kostar þessi töf mig samt einhverja peninga, auk þess að ég gæti jafnvel þurft að fara í aðeins fleiri flugvélar.  Bögg.


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan