Dagbók frúarinnar

All we have to decide is what to do with the time that is given to us

25.06.2007 22:14:47 / FrúSóley

Pétur Gautur

Í kvöld var fyrsta æfing hjá Ungfóníu fyrir tónleikana í júlí.  Erum að spila Pétur Gaut eftir Greig.  Það hefur verið eitt af mínum uppáhalds tónverkum síðan ég man eftir mér.  Bókstaflega.  Ég man meira að segja eftir því að hafa hlustað á þetta þegar ég var bara pínulítil, of lítil til að setja plötuna á sjálf.  Gaman:D

Svo er ég orðin gífurlega fróð um tónlist á fornöld og miðöldum í Evrópu8).  Nú er ég komin á kaf í endurreisnina.  Það er bara svolítið gaman að rifja upp tónlistarsögu.  Ég virðist hins vegar þurfa að bíða um það bil endalaust eftir tónfræðibókunum sem ég pantaði á netinu, til þess að geta lært alla tónfræðina upp á nýtt á útlensku, en það verður vonandi samt ekkert mál.

 Í dag fór ég að hlaupa, í jóga og að gefa blóð.  Svo tók ég bensín á bílinn8).  Ég er núna líka hér um bil búin að fara í gegn um allt dótið sem ég á og henda góðum slatta af því, því ég er að fara að flytja eftir afskaplega fáar vikur að mér finnst.  En kallinn í útlöndum er ekki ennþá búinn að svara mikilvæga tölvupóstinum mínum og bráðum fer það að verða vandamál.  Á miðvikudaginn ætla ég að senda honum tölvupóst þar sem ég segi honum að ég þurfi bráðum að fá svar, ella sé ég í vondum málum.  Hugsa að ég segi það samt á útlensku.  Ok, þetta er nú orðin meiri steypan:P, best að fara bara að hætta þessu.  Fer bara í rúmið að lesa, það er mér fyrir bestu.     


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 21:51:57 / FrúSóley

Sumarsólstöður

Er í smá pásu frá lestri.  Er á fullu að læra fyrir stöðupróf sem ég fer í í ágúst.  Stend líka í miklu veseni þessa daganna, en það er bölvað vesen að flytja til Ameríku, sérstaklega með útlenskan maka.  Það verður víst bara að hafa það.  Sérstaklega finnst mér slæmt þegar maður bíður og bíður eftir mikilvægum tölvupósti sem aldrei kemur.  Er reyndar búin að fá íbúð úti, sem er alveg frábært:)  Hún er þriggja herbergja og með húsgögnum.  Sumsé gestaherbergi krakkar mínir, þið vitið, svona fyrir gesti, sem mega alveg koma og skoða kúrekana og indjánana!

Annars er búið að vera líf og fjör.  Bára hefur verið í bænum undanfarið og við höfum brallað ýmislegt misgáfulegt;), svo sem eins og að fara til Eyja.  Það er reyndar alltaf ótrúlega gaman.  Vildi að ég byggi þarna.

Og það er svo gott veður þessa daganna.  Vildi að ég gæti bara verið úti að leika:)!

Næst á dagskrá, fyrir utan vesen, er Ungfónía, en til stendur að fara á Þjóðlagahátíð, sem er náttúrulega bara brjálað fjör.  Svo er ættarmót fyrir norðan, tónleikar fyrir austan og síðast en ekki síst Þjóðhátíð í Eyjum, en til hennar er ég búin að hlakka frá því að þeirri síðustu lauk:D.  


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 08:58:00 / FrúSóley

Ok, ein hugmynd

Ok, ég var að horfa á fréttir.  Brottfall í háskólum er vandamál, sérstaklega þeim ríkisreknu.  Nú fullyrðir Ríkisendurskoðun að brottfall háskólanema sé meira í ríkisreknu háskólunum heldur en einkareknu háskólunum vegna þess að nemendur borga ekki skólagjöld.  Kannski er það rétt.  Ég ætla samt ekkert að tuða yfir því. Ég er nefnilega búin að finna fullkomna aðferð til þess að laga þetta.  Það á bara að láta nemendurna í ríkisreknu skólunum borga skólagjöld og endurgreiða þau svo þegar nemandinn útskrifast.  Það yrði nú svolítið mikil hvatning fyrir nemendur að klára sitt nám, ekki satt?  Og hvað væri nú gott að fá fullt af peningum þegar maður er ný búinn í námi og á einmitt enga peninga?  LÍN sér auðvitað um að fjármagna þetta rétt á meðan á námi stendur. 

Og ég er að fara til Vestmannaeyja á eftir með Báru:D.  Það er sko kúl.  Við erum að fara til þess að spila með Lúðrasveit Vestmannaeyja á Pæjumóti, ekki að þeir þurfi svosem á okkur að halda, hugsa ég, en okkur langar bara alltaf að fara til Eyja, sem er eitthvað sem maður gerir ekki nema að eiga þangað erindi.  Það er ekki eins og það sé bara hægt að skreppa þangað í bíltúr.  Og fólkið í Lúðrasveitinni þar er bara rosalega skemmtilegt. 

Og um daginn, um miðja nótt, löbbuðum við Bára frá Rauðavatni, þið vitið, þar sem nýja Morgunblaðshúsið er, og niður í bæ.  Það var hetjudáð vikunnar! 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 21:02:54 / FrúSóley

Vesen

Lífið mitt einkennist svolítið af veseni þessa dagana.  Komst að því þegar vinkona mín hringdi áðan og spurði "Ertu búin að vesenast mikið í dag?".  Ég svaraði því náttúrulega játandi.  Það er vesen að flytja til útlanda.  Þarf að fást við ýmislegt sem tengist háskólanum úti, Flugleiðum, Ferðaskrifstofu Íslands, Bandaríska sendiráðinu, Þjóðskrá, LÍN og margt fleira.  Þetta er allt náttúrulega voða gaman, eða hitt þó.  Í dag fór ég til dæmis í þjóðskrá til þess að fá hjúskaparvottorð, pantaði tíma hjá Bandaríska sendiráðinu til þess að fá að skila inn umsókn um vegabréfsáritun fyrir Erik og sendi tvo tölvupósta til aðila í háskólanum úti til þess að reyna að sleppa við einhver námskeið sem ég á að fara á ef ég vil vera aðstoðarkennari, en þau eru afar illa tímasett.  Gaman þegar maður fær bréf um það að maður þurfi að vera hinum megin í heiminum mörgum dögum fyrr en maður hafði áætlað akkúrat að kvöldi þess dags sem hefur allur farið í að panta flugferðir.  Ég orgaði næstumþví af gremju:frown:, en fór þess í stað að sofa og er að díla við málið núna. 

En í morgun fór ég að spila með Lúðrasveitinni.  Það er fyndið að spila á flautu í mótvindi.  Það kemur ekki tónn:lol:.

Og á morgun fer ég á tónleika og á föstudaginn í leikhús, svo lífið er ekki bara vesen, þrátt fyrir allt:).

 


» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan